30.05.1960
Efri deild: 87. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3654 í B-deild Alþingistíðinda. (1857)

Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa

forseti (SÓÓ):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 27. maí 1960. — Þar sem ég er á förum til útlanda til starfa í mannréttindanefnd Evrópu í Strasbourg og verð fjarverandi um tveggja vikna skeið, leyfi ég mér hér með með skírskotun til 138. gr. kosningalaga að fara þess á leit, að varamaður minn, Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.

Friðjón Skarphéðinsson.

Til forseta efri deildar.“

Samkvæmt þessu bréfi tekur Unnar Stefánsson nú sæti í þessari hv. d., og vil ég bjóða hann velkominn hingað til starfa.