26.11.1959
Efri deild: 3. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3654 í B-deild Alþingistíðinda. (1859)
Mannaskipti í nefnd
forseti (SÓÓ):
Mér hefur verið tilkynnt, að þegar kosið var í þingnefndir í þessari hv. d. á síðasta fundi, hafi nafn Friðjóns Skarphéðinssonar af vangá verið sett á A-lista, er kosið var í samgmn., en það átti að vera nafn Jóns Þorsteinssonar. Ég hef verið beðinn um að tilkynna þetta, og ef deildin hefur ekki neitt við það að athuga, að þessi breyt. verði á, þá vil ég leyfa mér að líta á það sem samþykki hennar, að Jón Þorsteinsson taki sæti í samgmn. í stað Friðjóns Skarphéðinssonar. Það virðist enginn hafa — (Gripið fram í: Hefur þessi kosning ekki farið fram? ) Þessi kosning hefur farið fram, jú, en þetta er talin leiðrétting á henni. Ef deildin hefur eitthvað á móti þessu, þá er óskað eftir, að það komi fram. Það kemur ekki fram sérstök ósk um það, að kosning fari fram að nýju, og því skoða ég samþykkt, að Jón Þorsteinsson taki sæti í samgöngumálanefnd í stað Friðjóns Skarphéðinssonar.