07.12.1959
Neðri deild: 15. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3668 í B-deild Alþingistíðinda. (1944)

Þingfrestun og setning þings að nýju

forseti (BGr):

Þá er dagskrá þessa fundar tæmd. Þar sem þetta er líklega síðasti fundur deildarinnar fyrir þingfrestun, vil ég færa hv. deildarmönnum beztu þakkir fyrir samstarf þennan stutta tíma, sem deildin hefur nú starfað, bæði í sátt og sundurlyndi. Ég vil þakka skrifstofustjóra þingsins og öllu starfsliði þess fyrir vel og alúðlega unnin störf. Ég vil óska utanbæjarmönnum öllum góðrar ferðar og góðrar heimkomu. Ég vil óska þingmönnum öllum, starfsliði þingsins og fjölskyldum gleðilegrar jólahátíðar, árs og friðar.