07.12.1959
Sameinað þing: 8. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3668 í B-deild Alþingistíðinda. (1948)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Eysteinn Jónsson:

Ég vil leyfa mér í nafni þingmanna að þakka hæstv. forseta þær árnaðaróskir, sem hann flutti. Ég þykist mega fullyrða, að við viljum allir hafa sem bezta samvinnu við forseta þingsins. Ég vil leyfa mér að færa hæstv. forseta árnaðaróskir, honum og fjölskyldu hans, jólaóskir og óskir um gleðilegt og farsælt nýtt ár. Ég vil biðja hv. þm. að taka undir þetta með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]