08.04.1960
Sameinað þing: 39. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3671 í B-deild Alþingistíðinda. (1960)

Þinghlé

forseti (FS):

Það hefur verið svo ákveðið, að fundahöldum Alþingis verði nú frestað um sinn eða fram yfir páska, og munu fundir væntanlega hefjast á ný þriðjudaginn 19. apríl. Ég vil því nota þetta tækifæri og óska öllum hv. þm. og fjölskyldum þeirra gleðilegrar páskahátíðar, og þeim, sem burt fara til heimila sinna utan bæjarins, óska ég góðrar ferðar og góðrar heimkomu og heillar afturkomu að þinghléinu loknu.