08.04.1960
Sameinað þing: 39. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3671 í B-deild Alþingistíðinda. (1961)

Þinghlé

Eysteinn Jónsson:

Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir hlýjar óskir hans í okkar garð. Enn fremur vil ég, — og ég veit, að ég má gera það í nafni allra þingmanna, — óska honum og hans fólki gleðilegrar hátíðar og alls góðs og láta í ljós þá ósk, að við eigum eftir að hitta hann heilan hér að páskahléinu loknu. Ég vil biðja menn um að taka undir þetta með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]