02.06.1960
Neðri deild: 95. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3672 í B-deild Alþingistíðinda. (1967)

Starfslok deilda

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér f.h. þdm. að þakka góðar óskir forseta í okkar garð, og ég vil um leið, — og ég veit, að ég mæli þar fyrir munn allra hv. þdm., — þakka honum fyrir gott samstarf við okkur allt þetta langa þingtímabil, sem nú er að ljúka. Ég vil óska honum og hans fjölskyldu alls góðs og vona, að við megum sjá hann aftur heilan á húfi hér í haust, þegar við hittumst að nýju. Ég vil biðja hv. þdm. um að rísa úr sætum og taka þannig undir árnaðaróskir mínar til hæstv. forseta. — [Dm. risu úr sætum.]