19.05.1960
Neðri deild: 84. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í C-deild Alþingistíðinda. (2167)

13. mál, áburðarverksmiðja

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég hef skrifað undir nál. á þskj. 368 með fyrirvara. Þar segir, að það sé eigi talið ótvírætt um eignarrétt áburðarverksmiðjunnar. Ég er ekki fyrir mitt leyti í neinum vafa um þetta atriði, hver eigi verksmiðjuna. Hins vegar eru það aðrir, sem telja, að það geti orkað tvímælis. Ég tel þess vegna ekkert á móti því, að málinu sé vísað til stjórnarinnar til athugunar, og segi já.