27.04.1960
Sameinað þing: 43. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í D-deild Alþingistíðinda. (2527)
82. mál, endurskoðun laga nr. 11 1905, um landsdóm
Frsm. (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti. Allshn. hefur haft til meðferðar till. til þál. á þskj. 154 um endurskoðun laga nr. 11 1905, um landsdóm. Nefndin hefur athugað till. og kynnt sér ákvæði laga um landsdóm, sem ég nefndi áðan, og í nefndinni hefur orðið samkomulag um að mæla með því, að till. verði samþykkt.
14. gr. stjórnarskrárinnar hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta: „Ráðherra ber ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum. Ráðherraábyrgð er ákveðin með lögum, Alþingi getur kært ráðherra fyrir embættisrekstur þeirra. Landsdómur dæmir þau mál. “
Eins og ég sagði áðan, eru þau lög um landsdóm, sem nú gilda, frá árinu 1905, og voru þá sett í fyrsta sinn lagaákvæði um það efni eða rétt eftir að stjórnin varð innlend. Samkv. þessum lögum á landsdómur að vera skipaður 30 mönnum, þar af eru 6 sjálfkjörnir lögfróðir embættismenn, en 24 valdir á sérstakan hátt úr 72 manna hópi, sem gert er ráð fyrir að kjörinn sé af sýslunefndum og bæjarstjórnum.
Eins og bent var á við 1. umr. af hv. flm. þessarar tillögu, hafa ýmsar breytingar orðið, síðan þessi lög voru sett, þannig að þeir aðilar, sem ættu að tilnefna í landsdóminn, eru orðnir miklu fleiri en áður var. Kaupstaðirnir, sem voru 4, eru nú orðnir 14, og einnig hefur sýslum verið skipt. En nöfn þeirra sýslna og kaupstaða, sem eiga að tilnefna í dóminn, eru hins vegar fastákveðin í lögunum. Einnig getur leikið nokkur vafi á því nú, hvernig hinir 6 sjálfkjörnu dómsmenn skuli koma inn í dóminn.
Reynslan er svo sú, að þessi dómur mun í raun og veru ekki vera til. Það hafa í öndverðu verið kosnir menn í hann, en síðan er langur tími liðinn, og kosning þeirra hefur ekki verið endurnýjuð og varamenn ekki kosnir, a.m.k. ekki þannig, að telja megi, að dómurinn sé í raun og veru til staðar. Hins vegar er skýrt fram tekið í stjórnarskránni, eins og ég las upp áðan, að þessi dómur skuli vera til og honum falin ákveðin verkefni.
Nefndin er þess vegna, eins og ég sagði áðan, sammála flm. um það, að nauðsyn beri til að endurskoða þessi lög og að slík lög þurfi að vera til, á meðan ákvæði um landsdóm eru í stjórnarskránni.