27.05.1960
Sameinað þing: 54. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í D-deild Alþingistíðinda. (2770)
177. mál, skaðabætur vegna endurbóta á vegakerfi landsins
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Ég vildi aðeins í sambandi við þessa till. gefa upplýsingar um, að það mál, sem hér er farið fram á að ríkisstj. afgreiði, hefur verið afgreitt. Það var á fyrstu dögum desembermánaðar s.l., sem hv. þm.
Jón Árnason kom að máli við mig og lýsti því, hversu nauðsynlegt það væri fyrir Akranes að fá sjálfvirka símstöð. Stuttu síðar átti ég tal við póst- og símamálastjóra um þetta, um leið og rætt var um sjálfvirka stöð fyrir Vestmannaeyjar, og var gengið frá því í janúarmánuði að panta sjálfvirka stöð til Vestmannaeyja og Akraness, og hefur verið gerður bindandi samningur um þessi kaup. Ef hv. varaþm., bæjarstjórinn á Akranesi, hefði vitað um þetta, hefði hann vitanlega ekki flutt þessa till. En eins og getið er um, þá var það 20. jan. s.l., sem bæjarstjórnin gerði samþykkt um þetta, en það var áður, sem ég hafði átt tal við póst- og símamálastjóra, og um þetta leyti var ákvörðun tekin um að panta sjálfvirka símstöð. En það hefur einhvern veginn farið fram hjá bæjarstjóranum, hvað gerzt hefur í málinu, og þykir mér þess vegna sjálfsagt, að það verði upplýst hér, um leið og það yrði þá ljóst, að ekki var þörf fyrir till.
Það er alveg rétt, sem segir í grg. fyrir till., að það er vitanlega mjög nauðsynlegt fyrir vaxandi bæ eins og Akranes að fá sjálfvirka símstöð, og það er einnig ekki síður fyrir landssímann praktísk ráðstöfun, þegar til lengdar lætur, í sambandi við rekstrarkostnaðinn, því að það er æði mikið fólkshald, sem sparast við sjálfvirkar stöðvar. Þess vegna er það, sem landssíminn vitanlega kappkostar og á að kappkosta, eftir því sem fjármagn leyfir að setja í stofnkostnað á hverjum tíma, að koma upp sem víðast sjálfvirku kerfi. Það gerir allan rekstur heppilegri og praktískari en annars. Það hefur beðið alllengi að fá sjálfvirka stöð bæði til Vestmannaeyja og Akraness, en úr því verður nú bætt. En því miður er afgreiðslufrestur nokkuð langur á þessum stöðvum, 1–2 ár, þannig að það verður ekki fyrr en seint á árinu 1961, sem þessar stöðvar koma í gagnið.
Ég vildi aðeins upplýsa þetta að gefnu tilefni, því að það er ljóst, að hv. flm., þegar hann flutti till., hefur ekki vitað, á hvaða stigi málið er, og það var einnig að heyra á hv. frsm., að hann hafi ekki heldur vitað, hvað hafði gerzt í þessu máli.