01.06.1960
Sameinað þing: 57. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í D-deild Alþingistíðinda. (2775)
177. mál, skaðabætur vegna endurbóta á vegakerfi landsins
Frsm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Hæstv. ráðh. símamála upplýsti það við fyrri umr. um till., að hafizt hefði verið handa um það verk, sem hér er um að ræða, og teknar þær ákvarðanir, sem till. gerir ráð fyrir. Póst- og símamálastjóri hefur jafnframt gert n. grein fyrir því, að í byrjun þessa árs hafi póst- og símamálaráðh. ákveðið, að símstöðin á Akranesi yrði endurnýjuð með sjálfvirkri símstöð og jafnframt komið á sjálfvirku símasambandi frá notendum þar til notenda í Reykjavík, Hafnarfirði, Keflavík og nágrenni, og að efni til þessara framkvæmda hefði þegar verið pantað. Það er gert ráð fyrir því í hans bréfi, að það geti hins vegar ekki orðið um það að ræða, að stöðinni verði endanlega komið upp á næsta ári, aðeins af þeirri sök, að afhendingartími á efni sé því til hindrunar, en að öðru leyti muni verða unnið að framkvæmdum þessum með þeim hraða, sem auðið er. Af þessum sökum, þar sem þessar upplýsingar liggja fyrir um, að það hafi þegar verið gert, sem þáltill. fer fram á, hefur fjvn. einróma lagt til, að málið yrði afgr. með rökstuddri dagskrá, sem n. flytur á þskj. 584.