02.12.1959
Sameinað þing: 5. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 373 í D-deild Alþingistíðinda. (3070)

11. mál, lántaka í Bandaríkjunum

Fyrirspyrjandi (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Í fyrrahaust og vetur var undirbúin 6 milljón dollara lántaka í Bandaríkjunum. Þessi fyrirspurn fjallar um þetta mál og er svo hljóðandi:

„Hvað hefur verið tekið mikið af fyrirhuguðu 6 milljón dollara láni í Bandaríkjunum?“ Og í öðru lagi: „Hvernig hefur því lánsfé verið varið, sem búið er að taka á móti?“