11.05.1960
Sameinað þing: 48. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í D-deild Alþingistíðinda. (3220)

911. mál, gjaldeyrislántaka

Fyrirspyrjandi (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Fsp. er þannig: „Hvað er búið að nota mikið af heimildum þeim til gjaldeyrislántöku, sem ríkisstj. aflaði sér með efnahagslöggjöfinni í vetur?“ Ég vona, að fyrirspurnin sé svo skýr, að það þurfi ekki neinn formála með henni, og mun því ekki flytja neinn slíkan.