14.03.1960
Efri deild: 41. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1459 í B-deild Alþingistíðinda. (360)

41. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Eggert G. Þorsteinsson:

Persónulega er ég hlynntur efni þessarar brtt., sem hér eru greidd atkv. um. En ég tel, að það raski svo meginefni þess samkomulags, sem þegar hefur verið gert í hinni margnefndu sex manna nefnd, að af þeirri ástæðu greiði ég till. ekki atkv. nú og segi nei.