21.03.1960
Sameinað þing: 27. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1644 í B-deild Alþingistíðinda. (406)

42. mál, fjárlög 1960

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Vegna gengislækkunarinnar hafa skapazt alveg sérstakar aðstæður varðandi Akraneshöfn, sem aðrar hafnir í landinu hafa ekki. Mér er kunnugt um það, að hæstv. ríkisstj. hefur þetta mál í athugun, og í trausti þess, að sú athugun leiði til þess, að málið verði leyst á viðunandi hátt, þá segi ég nei.