28.03.1960
Sameinað þing: 30. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1706 í B-deild Alþingistíðinda. (421)
42. mál, fjárlög 1960
Geir Gunnarsson:
Herra forseti. Þær tvær till., sem ég tók aftur við 2. umr. um fjárl., hef ég flutt aftur við þessa umr. Till. þessum hefur enn ekki verið útbýtt, en þær fjalla um hækkun á framlögum til tónlistarskóla Hafnarfjarðar og barnaheimilissjóðs Hafnarfjarðar. Fyrir þeim tveimur till. mælti ég við þá umr. og sé ég ekki ástæðu til að bæta neinu við það nú, nema hvað ég vil ítreka það, að ég tel þessa aðila verða afskipta, miðað við aðra, ef framlög til þeirra fást ekki hækkuð.
Þá flyt ég brtt., sem enn hefur ekki verið útbýtt, þess efnis, að 2 millj. eða til vara 1 millj. kr. verði varið til að halda áfram byggingu póst- og símahúss í Hafnarfirði. Ég hygg, að fáir eða engir kaupstaðir eða jafnvel þorp úti á landi búi við jafnlélegt húsnæði fyrir póstþjónustu og Hafnarfjörður, þar sem nú búa um 7 þús. manns, og má heita furðulegt, hve lengi hefur verið dregið að bæta þar úr. Það er einnig mála sannast, að fáir eða alls engir hafi orðið að sæta jafnlélegri aðstöðu í símamálum og Hafnfirðingar. Um fjölda ára hefur ekki verið hægt að fjölga símtækjum í Hafnarfirði, þótt fólki hafi fjölgað þar hlutfallslega og tölulega meir en víðast annars staðar á landinu. Er það vitaskuld með öllu óviðunandi, að ekki skuli vera undinn bráður bugur að því að bæta svo úr, að hægt sé að sinna þeim fjölmörgu umsóknum um nýja síma, sem nú liggja fyrir hjá símstöðinni í Hafnarfirði, bæði frá fyrirtækjum og einstaklingum. Þess má t.d. geta, að svo er nú komið, að það veldur erfiðleikum um að stofnsetja ný atvinnufyrirtæki í Hafnarfirði, að þau eiga ekki kost á að fá síma. Símalínur milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur eru langtum of fáar, og hafa því ráðamenn landssímans gripið til þess ráðs að skammta símtöl milli þessara staða með sérstökum ráðstöfunum. Símtöl eru slitin eftir ákveðinn tíma og þau reiknuð til gjalda margföld á við innanbæjarsímtöl. Viðunandi lausn á þessu ófremdarástandi öllu fæst því aðeins, að símstöðin verði stækkuð og fjölgað símalínum milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur.
Eftir að símstöðin í Reykjavík hafði verið stækkuð tvisvar og séð hafði verið fyrir stækkun í Keflavík, þá sást loks s.l. sumar rofa fyrir lausn í þessu máli. Birtar voru teikningar af nýju póst- og símahúsi í Hafnarfirði, og byrjað var á framkvæmdum að mig minnir nokkru fyrir kosningar. Hvað sem því líður, fögnuðu Hafnfirðingar þessum framkvæmdum mjög, þótt síðbúnar væru, og hafa án efa vænzt þess, að röggsamlega yrði að framkvæmdum staðið. En þær vonir hafa því miður brugðizt. Enn í dag er aðeins grunnur hússins kominn, og við það hefur ekki verið unnið um alllangt skeið. En uggvænlegast er, að á fjárl. nú er ekki gert ráð fyrir neinni sérstakri fjárhæð til byggingarinnar. Hafnfirðingar munu vart trúa því, að ekki eigi að halda byggingarframkvæmdum áfram nú strax í vor og ljúka beim á eðlilegum tíma, og ég vænti þess, að hv. alþm. tryggi framgang þessa máls með sérstakri fjárveitingu í þessu skyni.
Hafnfirðingar eiga fullan rétt á því, að framkvæmdum við byggingu póst- og símahússins sé haldið áfram með eðlilegum hraða, svo að þeir þurfi ekki enn að bíða von úr viti eftir úrbótum í símamálum, í svo miklu ófremdarástandi sem þau eru nú. Símagjöld þeirra hafa verið hækkuð vegna stækkunar stöðva fyrir Reykjavík, Kópavog og Keflavík, og þeir hafa verið látnir bíða lengst allra, og þegar röðin er loks komin að þeim, er það lágmarkskrafa, að framkvæmdir séu ekki stöðvaðar á fyrsta stigi.