29.03.1960
Efri deild: 48. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1745 í B-deild Alþingistíðinda. (452)

99. mál, alþjóðasamningur um fiskveiðar á norðausturhluta Atlantshafs

Forseti. (SÓÓ):

Í sambandi við tilmæli hæstv. ráðh. um það, að það liggur á að koma þessu máli fram og gera það að lögum, þá vil ég skjóta því til hv. formanns n., hvort hann gæti ekki séð til þess, að n. tæki þetta til meðferðar í kvöld, þannig að nál. gæti verið tilbúið á morgun og væri þá hægt að taka það fyrir. Ég vil vinsamlegast víkja þessu til hv. formanns nefndarinnar.