30.11.1959
Efri deild: 5. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í B-deild Alþingistíðinda. (54)

16. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1960

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Því hefur verið yfir lýst af Sjálfstfl., að bændum verði bætt sú skerðing, sem varð með brbl. á s.l. hausti. Það er hins vegar svo, að það er með öllu óeðlilegt að tengja þessa heimild, sem hér er rætt um í þessari brtt., við það mál, sem hér liggur fyrir, og bæði ástæðulaust og óþarft að gera það. Með hliðsjón af því segi ég nei.