23.05.1960
Neðri deild: 86. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2533 í B-deild Alþingistíðinda. (881)

150. mál, Verslunarbanki Íslands h.f.

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Mig langar aðeins til þess að þakka hv. fjhn. fyrir skjóta og góða afgreiðslu á þessu máli og láta í ljós sérstaka ánægju yfir því, að n. skuli hafa verið sammála um að mæla með afgreiðslu frv. Vildi ég því mega vænta þess, að það hljóti greiðan gang í gegnum þessa hv. d. og að hv. Ed. taki á því með sama hætti.