02.03.1961
Sameinað þing: 44. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í D-deild Alþingistíðinda. (10006)

204. mál, lausn fiskveiðideilunnar við Breta

Forseti (FS):

Ræðumaður Sjálfstfl., hæstv. fjmrh., lauk máli sínu. Er þar með lokið fyrri umferð þessarar útvarpsumræðu. Alþfl. hefur notað 31 mínútu og á eftir 14 mínútur til síðari umferðar. Alþb. hefur notað 36 mínútur, á eftir 9 mínútur í síðari umferð. Framsfl. hefur notað 26 mínútur, á eftir 19 mínútur í síðari umferð. Sjálfstfl. hefur notað 30 mínútur, á eftir 15 mínútur í síðari umferð. — Ég leiðrétti síðar tíma Sjálfstfl., ef tíminn er rangur.

Næstur tekur til máls ræðumaður Alþfl., hæstv. félmrh., Emil Jónsson.