13.10.1960
Efri deild: 3. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í B-deild Alþingistíðinda. (109)

3. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Þetta frv. felur í sér í meginatriðum sömu ákvæði og lög nr. 67 frá 1959, um bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga. Hér er um að ræða viðauka við ýmis gjöld, sem samþykkt höfðu verið og framlengd nú um margra ára skeið ár frá ári. Þó eru nokkrar breytingar í þessu frv. frá gildandi lögum, þeim sem ég nefndi, og skal ég rekja þær breytingar.

Eftir að þessi umgetnu lög voru. sett fyrir síðustu áramót, voru nokkur ákvæði þeirra tekin upp í efnahagsmálalögin, en það voru ákvæði um innheimtu vitagjalds, um lestagjald og sérstakt innflutningsgjald af benzíni. Þar sem þessi ákvæði eru í efnahagsmálalögunum, hafa þau verið felld niður úr þessu frv. Enn fremur eru í fjórða lagi skipaskoðunargjöld, sem verið hafa í sáms konar frumvörpum áður, ekki tekin í þetta frv., vegna þess að sett hefur verið reglugerð samkv. lögum frá 1947, um eftirlit með skipum, um gjöld fyrir skoðun skipa.

Það, sem þetta frv. fjallar þá um, og er þar alls staðar um að ræða framlengingar, eins og þær hafa verið gerðar frá ári til árs, það er heimild til að innheimta stimpilgjald og leyfisbréfagjöld með viðauka, um gjald af innlendum tollvörutegundum með viðauka, um bifreiðaskatt, um innflutningsgjald af hjólbörðum og viðauka við vörumagnstoll og verðtoll.

Þá er enn fremur gert ráð fyrir því, að sú heimild haldist, sem verið hefur, að fella niður aðflutningsgjöld af nokkrum nauðsynjavörum, eins og greinir í niðurlagi 4. gr. frv. Að því er stefnt og að því er unnið að endurskoða tollskrána og alla löggjöf um aðflutningsgjöld. Það er mikið verk og er ekki tilbúið enn, og verður væntanlega ekki unnt að leggja hina endurskoðuðu tollskrá fyrir þetta þing. Þess vegna þarf að framlengja þessa gjaldaviðauka, eins og verið hefur undanfarin ár. En við endurskoðun tollskrár og annarrar löggjafar um aðflutningsgjöld verður að sjálfsögðu stefnt að því að fella þessa viðauka þar inn í.

Ég vil leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.