15.12.1960
Sameinað þing: 24. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í B-deild Alþingistíðinda. (128)

2. mál, fjáraukalög 1958

Frsm. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur fengið frv. til fjáraukalaga fyrir 1958 til meðferðar, og hefur nefndin borið það saman við ríkisreikning og ekkert fundið við það að athuga. Eins og kemur fram í áliti nefndarinnar, eru nefndarmenn á eitt sáttir um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt, og vonum við. að hv. alþm, fallist á það.