23.03.1961
Neðri deild: 80. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1368 í B-deild Alþingistíðinda. (1405)

182. mál, afhending Þingeyjar í Skjálfandafljóti

Forseti (BGr):

Með því að leiðrétting sú, sem frsm. gat um, felur í sér algera merkingarbreytingu á orðum, tel ég réttara, að nefndin geri brtt. um þetta formlega fyrir 3. umr., en með því fororði vildi ég mega líta svo á, að fyrirsögnin gengi óbreytt áfram til 3. umr., eins og hún kom frá Ed.