16.12.1960
Sameinað þing: 25. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í B-deild Alþingistíðinda. (141)
113. mál, fjáraukalög 1959
Frsm. (Birgir Finnsson):
Herra forseti. Mér datt það ekki í hug í gær, að sú athugasemd, sem ég lét fylgja fjáraukalögunum fyrir 1959, þyrfti í sjálfu sér að vekja upp neinar umr. Ég hélt satt að segja, að það væri leyfilegt að geta þess hér í þinginu, þegar svo vel tekst til, að þannig er á málum haldið, að fjárlög ríkisins eru þrædd betur en venjulegt er. Og ég vil bæta því við þetta, að einmitt árið 1959 voru það þrír stærstu flokkar þingsins, sem báru ábyrgð á efnahagsmálunum, og þar í liggur kannske skýringin á því meðal annars, að útkoman varð sú, að mér er sagt, að það hafi ekki nema einu sinni áður komið fyrir, að umframgreiðslur hafi orðið jafnlitlar og þær urðu þá. Í framhaldi af þessu vil ég bæta því við, að að þessu leyti getur auðvitað hv. Framsfl. eignað sér líka það hól, sem ég lét falla um þetta fjárhagstímabil.