24.03.1961
Efri deild: 82. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1381 í B-deild Alþingistíðinda. (1476)

126. mál, matreiðslumenn

Jón Árnason:

Herra forseti. Ég vil aðeins taka það fram, að mér þykir þetta eðlilegt, að nm. fái tíma til þess að athuga málið nánar, áður en það verður endanlega tekið hér til afgreiðslu, og að það liggi þá fyrir umsögn nefndarinnar fyrir 3. umr. málsins. Ég mun því verða við beiðni frsm. um það að taka till. aftur til 3. umr.