20.02.1961
Efri deild: 63. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1400 í B-deild Alþingistíðinda. (1498)

173. mál, sveitarstjórnarlög

Forseti (SÓÓ):

Það hefur komið fram ósk um það, að þessari umr. yrði frestað. Þar sem þetta er nú síðasta umr. í þessari hv. d. um málið, þá sé ég ekki beint ástæðu til þess að vera á móti því, að umr. verði frestað til morguns. Málið ætti ekki að vera í neinni hættu fyrir því. Og ég geri ekki ráð fyrir, að hv. heilbr.- og félmn. hafi heldur á móti frestun. Málið mun þá verða tekið á dagskrá á morgun.