28.10.1960
Neðri deild: 12. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í B-deild Alþingistíðinda. (161)

78. mál, veiting ríkisborgararéttar

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Frv. þetta hefur verið samið í samræmi við þær reglur, sem fylgt hefur verið um veitingu ríkisborgararéttar undanfarin ár, og er í raun og veru ekkert frekar um það að segja. Ég hygg, að einhverjar fleiri umsóknir muni vera á leiðinni. Þær verða þá athugaðar við meðferð málsins hér í þinginu.

Ég leyfi mér að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv, allshn.