07.11.1960
Sameinað þing: 11. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1740 í B-deild Alþingistíðinda. (1659)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (SÁ):

Ég vil bjóða hina nýju alþm. velkomna til þingstarfa. Sá hv. alþm., sem hefur ekki átt sæti hér áður á Alþingi, hefur nú skrifað undir drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.