12.12.1960
Efri deild: 34. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1743 í B-deild Alþingistíðinda. (1672)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SÓÓ):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 10. des. 1960.

Þar sem ég er á förum til útlanda til starfa í mannréttindanefnd Evrópu í Strassbourg og verð fjarverandi um tveggja vikna skeið, leyfi ég mér hér með, með skírskotun til 138. gr. kosningalaga, að fara þess á leit, að varamaður minn, Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.

Friðjón Skarphéðinsson.

Til forseta efri deildar.“

Unnar Stefánsson er hér mættur í deildinni, og ég býð hann velkominn til starfa.