15.02.1961
Sameinað þing: 39. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1746 í B-deild Alþingistíðinda. (1683)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Jón Pálmason):

Herra forseti. Svo sem hæstv. forseti tilkynnti, hefur hv. 6. þm. Norðurl. e., Magnús Jónsson, forfallazt vegna utanlandsferðar og óska eftir, að varamaður taki við. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Gísla Jónssonar menntaskólakennara á Akureyri og hefur ekkert við það að athuga. Mælir nefndin einróma með því, að kjörbréfið verði samþykkt.