20.12.1960
Sameinað þing: 29. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1757 í B-deild Alþingistíðinda. (1720)

Starfsmenn þingsins

forseti (SA):

Þar sem hæstv. forsrh. mun lesa hér forsetabréf um frestun Alþingis fram yfir áramót, vil ég fyrir hönd okkar forseta sameinaðs Alþingis þakka hv. alþm. samstarfið þann tíma, sem Alþingi hefur setið að störfum þessu sinni. Ég óska þeim og fjölskyldum þeirra svo og skrifstofustjóra og öllu starfsfólki Alþingis gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Utanbæjar alþingismönnum óska ég fararheilla heim og góðrar heimkomu. Það er ósk mín og von, að við megum hittast heilir til funda hér aftur, er Alþingi kemur saman um miðjan janúar næstkomandi.