20.12.1960
Sameinað þing: 29. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1757 í B-deild Alþingistíðinda. (1721)
Starfsmenn þingsins
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Ég vil fyrir hönd þingmanna þakka forsetum sameinaðs þings fyrir gott samstarf og réttláta fundarstjórn. Ég vil einnig, — og ég veit, að ég tala þar fyrir munn allra þm., — þakka hæstv. forseta fyrir árnaðaróskir hans í okkar garð, og ég óska forsetum Sþ. og þeirra fjölskyldum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með þökkum fyrir samstarfið á því ári, sem nú er senn á enda. Ég vil biðja þm. að taka undir þessar óskir með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]