20.12.1960
Sameinað þing: 29. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1757 í B-deild Alþingistíðinda. (1723)

Starfsmenn þingsins

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur í dag gefið út svo hljóðandi bréf: „Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 81. löggjafarþings, frá 20. des. 1960, eða síðar, ef fundir dragast, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi siðar en 16. jan. 1961.

Gert að Bessastöðum, 20. des. 1960.

Ásgeir Ásgeirsson.

Ólafur Thors.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“ Samkv. þessu umboði lýsi ég hér með yfir því, að fundum Alþingis, 81. löggjafarþings, er frestað frá deginum í dag og verður það kvatt saman til fundar á ný eigi síðar en 16. jan. 1961.

Ég leyfi mér að árna hv. alþm. og starfsmönnum Alþingis gleðilegra jóla og farsæls nýárs.