16.01.1961
Sameinað þing: 30. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1758 í B-deild Alþingistíðinda. (1725)

Starfsmenn þingsins

forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Hinn 9. jan. 1961 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsrh., að Alþingi, 81. löggjafarþing, skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 16. jan. 1961, kl. 13.30.

Gert að Bessastöðum, 9. jan. 1961.

Ásgeir Ásgeirsson.

Ólafur Thors.

Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Samkvæmt þessu hefjast nú framhaldsfundir hv. Alþingis. Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta og hv. alþingismönnum gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðna árið, um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa að nýju.