23.03.1961
Neðri deild: 80. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 494 í C-deild Alþingistíðinda. (2064)

144. mál, áfengislög

Einar Ingimundarson:

Herra forseti. Út af ummælum og fsp. hv. 1. þm. Vestf. (GíslJ) vil ég taka fram, áð það hefur ekki enn þá verið tekin ákvörðun um það í allshn., hvort eða hvernig þetta frv. yrði afgr. þaðan eða hvort yrði gefið út nál. um það. Hins vegar vil ég upplýsa, að það er ætlunin að halda fund í n. annaðhvort í fyrramálið eða á laugardagsmorguninn, og verður þá væntanlega þetta frv. rætt þar. Hins vegar get ég ekkert á þessu stigi málsins sagt um það, hvort út verður gefið nál. um frv. að þeim fundi loknum.