26.10.1960
Sameinað þing: 7. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í D-deild Alþingistíðinda. (2454)

63. mál, rafmagnsmál á Snæfellsnesi

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara að karpa neitt við hv. 5. þm. Vesturl. út af þessu máli eða fara að ræða afstöðu þeirra Alþfl.-manna til landbúnaðarins. Það hafa þeir sjálfir skýrt svo greinilega síðustu dagana, að ég hef þar engu við að bæta. Hitt vil ég benda á, að með þessari tillögu hafa þeir sjálfir sannað það, að till. sérfræðinganna og þeirra eigin tillögur hafa verið gerðar með þeim hætti, að þeir þurfa að tveimur árum liðnum að fara að betrumbæta það, og þess vegna er þessi till. flutt.