22.03.1961
Sameinað þing: 55. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í D-deild Alþingistíðinda. (2472)

98. mál, virkjun Jökulsár á Fjöllum til stóriðju

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil f.h. okkar flm. þessarar till. leyfa mér að þakka hv. fjvn. fyrir þá afgreiðslu, sem nú hefur verið lýst hér. Jafnframt leyfi ég mér að vitna til framsöguræðu, sem flutt var um þetta mál á sínum tíma, og taka undir þau orð hv. frsm. að vænta þess, að till. verði samþ. hér í þingi, eins og hún hefur áður hlotið samþykki fjvn.