22.03.1961
Sameinað þing: 55. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 519 í D-deild Alþingistíðinda. (2517)

51. mál, skaðabótaábyrgð ríkis og sveitarfélaga

Frsm. (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Allshn. hefur haft til meðferðar og umr. till. á þskj. 53, um undirbúning löggjafar um skaðabótaábyrgð ríkis og sveitarfélaga. N. er sammála um að mæla með samþykkt hennar. Þar sem flm. flutti mjög ýtarlega og greinargóða ræðu um mál þetta við framsögu málsins, sé ég ekki ástæðu til þess að fara um það fleiri orðum.