12.12.1960
Efri deild: 34. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í B-deild Alþingistíðinda. (263)

130. mál, söluskattur

Forseti (SÓÓ):

Það er eins og skýrt hefur verið frá, að fjhn. hefur klofnað í þessu máli. Fyrir liggur enn sem komið er aðeins eitt nál., frá meiri hl. nefndarinnar, sem nú er búið að mæla fyrir, en það mun von á hinum nál. mjög bráðlega. Ég hefði óskað eftir, að umr. gætu haldið áfram, þó að nál. lægju ekki fyrir. Næstur á mælendaskrá er frsm. 1. minni hl, fjhn., hv. 1. þm. Norðurl. e., og ef hann gæti hafið ræðu sína, þó að hans nál. liggi ekki fyrir, þá væri það betra.