02.11.1960
Sameinað þing: 9. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 800 í D-deild Alþingistíðinda. (2774)
58. mál, útboð opinberra framkvæmda
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Vegna þess að ég hef e.t.v. ekki kveðið nógu skýrt að orði áðan, vildi ég láta þess getið, að verkefni nefndar þeirrar, sem iðnmrn. skipaði á sínum tíma, var einmitt að undirbúa löggjöf um útboð almennt, þannig að ef niðurstaða fæst af starfi þeirrar nefndar, sem ég fastlega vona, þá ættu þar að liggja fyrir tillögur um slíka löggjöf.