16.12.1960
Sameinað þing: 25. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í D-deild Alþingistíðinda. (2857)

95. mál, flugbraut í Vestmannaeyjum

Flm. (Unnar Stefánsson):

Herra forseti. Með till. þessari til þál. um flugbraut í Vesímanneyjum fylgir grg., þar sem rakin eru helztu rökin fyrir mikilvægi þess, að hið allra fyrsta verði hafizt handa um undirbúning þess mannvirkis. Það er því ekki ástæða til þess að fara mörgum orðum um þessa till., fyrir utan það, sem í grg. segir, og vildi ég því leggja til, að till, verði vísað til fjvn. og framhaldsumræðu.