18.01.1961
Sameinað þing: 32. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1148 í D-deild Alþingistíðinda. (3116)
139. mál, ríkisábyrgðir vegna togarakaupa
Fyrirspyrjandi (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Ég vil aðeins í framhaldi af því, sem hann tók fram um þessar ábyrgðir á lánum til 5 ára, benda á, að vitaskuld ríður mikið á því, að staðið verði við þær yfirlýsingar, sem gefnar voru í sambandi við þau lán. Eftir því sem ég hef fengið upplýst í sambandi við uppgjör ríkissjóðs fyrir nóvembermánuð, mun verið búið að leggja út úr ríkissjóði vegna h/f Ásfjalls 1 millj. 832 þús. á árinu 1960 og samtals allstóra fúlgu vegna bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, sem ég geri ráð fyrir að sé að mestu leyti vegna þess, hve þessi lán eru stutt. Það sýnist því ríða mikið á, að það geti orðið staðið við þær skuldbindingar eða yfirlýsingar, sem gefvar voru um að útvega nægilega löng lán.