06.02.1961
Efri deild: 53. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (456)

177. mál, sameining Áfengsisverslunar og tóbakseinkasölu

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Eins og fram kemur í grg. fyrir þessu frv. og nánar var lýst í framsöguræðu hæstv. fjmrh. fyrir frv. við 1. umr., þá er tilgangur þess sá að spara kostnað við rekstur þeirra stofnana, sem sameina á.

Fjhn. hefur haft þetta frv. til meðferðar og fellst á þau sjónarmið, sem liggja því að baki, að það hefur verið borið fram, og leggur einróma til, að það verði samþ. óbreytt.