14.02.1961
Efri deild: 60. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (518)

29. mál, héraðsfangelsi

Frsm, meiri hl. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Í þeim brtt., sem allshn. hefur gert á þskj. 359, felast ekki neinar efnisbreytingar, heldur er hér eingöngu um það að ræða að færa viðkomandi greinar til betra máls, og er þar í meginatriðum farið eftir ábendingum hv. 5. þm. Austf., sem fram komu við 2. umr. málsins hér í hv, d., og get ég að öðru leyti um þessi atriði vísað til þeirrar umræðu.