20.03.1961
Neðri deild: 78. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 848 í B-deild Alþingistíðinda. (867)

41. mál, Listasafn Íslands

Frsm. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Frv. þetta er hingað komið frá hv. Ed. Menntmn. þeirrar deildar hafði það til ýtarlegrar athugunar, ræddi það við ýmsa þá aðila, sem þetta mál snertir mest, gerði sameiginlegar tillögur um ýmsar breytingar, sem náðu fram að ganga í Ed.

Menntmn. þessarar hv. d. hefur farið yfir frv., hefur athugað þær breytingar, sem urðu á því í Ed., og er sammála um að mæla með samþykkt þess, eins og það liggur fyrir. Þó áskilja einstakir nm. sér rétt til þess að flytja brtt. eða fylgja, ef fram koma.