10.03.1961
Neðri deild: 73. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 872 í B-deild Alþingistíðinda. (939)
183. mál, Útvegsbanki Íslands
Frsm. meiri hl. (Birgir Kjaran):
Frv. þetta hefur eins og fyrri bankafrv. verið til meðferðar í fjhn. d., og þar hefur ekki að þessu sinni heldur orðið samkomulag um afgreiðslu málsins, og skilar minni hl., 1. þm. Norðurl. v., séráliti.
Í frv. þessu eru ekki miklar efnisbreytingar frá fyrri lögum um Útvegsbankann, enda hafa þau svo nýverið verið endurskoðuð. Helztar munu þær vera, að í 7. gr. frv. er breyting á ákvæðinu um fiskveiðasjóð og þar tekin af öll tvímæli um, að hann lúti undir bankastjórnina beint, en ekki bankaráð, eins og jafnvel mátti ráða af fyrri l., en raunar var framkvæmt þannig, að bankastjórn fór ein með þessi mál.
Önnur efnisbreyting er og í 10. gr. frv., þar sem gert er ráð fyrir, að bankaráð geti samkvæmt þessu frv., ef að lögum verður, haft heimild til þess að víkja bankastjóra úr starfi undir víssum kringumstæðum. Þetta er ákvæði, sem var ekki í fyrri lögum.
Þá er það þriðja atriðið, sem lýtur að kosningu bankaráðsins, og er með frv. þessu gert ráð fyrir, að bankaráð Útvegsbankans verði framvegis kosið með sama hætti og nú tíðkast í Búnaðarbanka og gert er ráð fyrir að verði í Seðlabanka og í Landsbanka Íslands.
Önnur efnisatriði eru svo veigalitil, að ég sé ekki ástæðu til þess að rekja þau hér. Hins vegar hefur meiri hluti nefndarinnar gert tillögu um breytingu þá, sem borin er fram í nál. á þskj. 420, þar sem gert er ráð fyrir, að sami háttur verði á kjöri aðalmanna og varamanna, ef frá falla á kjörtímabilinu, og gerð hefur veríð grein fyrir í sambandi við seðlabankafrv.
Það er till. fjhn. til hv. deildar, að frv. þetta verði samþykkt með þeirri breytingu, sem fram er lögð á þskj. 420.