10.10.1961
Sameinað þing: 0. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Forseti Íslands setur þingið

Forseti Íslands (Ásgeir Ásgeirsson):

Hinn 13. september 1961 var gefið út svo hljóðandi bréf handhafa forsetavaldsins:

„Handhafar valds forseta Íslands samkv. 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsætisráðherra, forseti sameinaðs Alþingis og forseti hæstaréttar, gera kunnugt:

Við höfum ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að reglulegt Alþingi skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 10. október 1961.

Um leið og vér birtum þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í dómkirkjunni, er hefst kl. 13.30.

Gert í Reykjavík, 13. september 1961.

Ólafur Thors, Jónatan Hallvarðsson,

Friðjón Skarphéðinsson.

Ólafur Thors.

Bréf handhafa valds forseta Íslands um, að reglulegt Alþingi 1961 skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 10. október 1961.“

Samkvæmt því bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að Alþingi Íslendinga er sett.

Ég árna Alþingi allra heilla í störfum, að þau megi verða landi og þjóð til trausts og halds, til gæfu og gengis.

Að svo mæltu bið ég alþingismenn að minnast ættjarðarinnar með því að rísa úr sætum. [Þingheimur stóð upp, og forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Var tekið undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

Samkv. 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna þingfundi, þar til kosning forseta sameinaðs þings hefur farið fram. Bið ég því aldursforseta, Gísla Jónsson, 1. þm. Vestf., að ganga til forsetastóls.