27.03.1962
Neðri deild: 77. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1304 í B-deild Alþingistíðinda. (1035)
13. mál, ráðstafanir vegna ákvörðunar um nýtt gengi
Frsm. 1. minni hl. (Skúli Guðmundsson):
Hæstv. forseti. Mér þykir rétt að láta Það koma fram, áður en umr. lýkur, að síðan rætt var um þetta mál á fundi d. í gærkvöld, hef ég fengið nýjar upplýsingar um eitt atriði í frv. Það er um þann gengismun, sem á að gera upptækan samkvæmt 6. gr. frv.
Þegar málið var í fjhn., óskaði ég eftir upplýsingum um það, hvað þessi gengismunur mundi verða mikill alls, og n. fékk áætlun um það frá Seðlabanka Íslands, sem er dags. 7. des. 1961. Þar er áætlað, að gengishagnaðurinn muni alls nema um 150 millj. kr. Ég óskaði síðar eftir vitneskju um það, hvað mikið af þessu fé mundi fara til að endurgreiða hluta af útflutningsgjaldi samkvæmt ákvæðum í frumvarpsgr. og hvað mikið mundi fara til ríkisins. Nú fékk ég í morgun þær upplýsingar, að þessi áætlun Seðlabankans sýndi þann gengishagnað, sem verða mundi, eftir að búið væri að greiða hluta af útflutningsgjaldinu. Þar kemur fram, að gert er ráð fyrir, að þessar 150 millj. fari til ríkissjóðs, þó að frádregnum 13 millj., sem segir í gr., eins og hún nú er, að heimilt sé að nota til að greiða það, sem á vantar, til þess að fé útflutningssjóðs hrökkvi til greiðslu vátryggingagjalda fiskiskipa árið 1960.
Ég taldi rétt að láta þetta koma fram. Þetta er að heita má að öllu leyti skattur á sjávarútveginn, því að þarna er nær eingöngu um sjávarafurðir að ræða, framleiddar fyrir 1. ágúst s.l.
Það hefur verið sýnt fram á í umr. um gengislækkunina, að vegna atvinnuveganna var engin þörf að breyta genginu, þrátt fyrir þær kauphækkanir, sem urðu í júnímánuði. Það skýrist um leið æ betur fyrir mönnum, að það eru aðrar ástæður, sem liggja hér á bak við. Hæstv. ríkisstj. hefur notað þessa aðferð, lækkun íslenzku krónunnar, til þess að ná peningum inn í ríkissjóðinn, miklum peningum. Menn segja svo til um það, pegar þeir greiða atkv. um 2. brtt. mína á þskj. 505 um að fella þessa 6. gr. niður, hvort þeir telja það sanngjarnt og sæmilegt að taka með ákvæðum þessarar frumvarpsgr. mikið á annað hundrað millj. af sjávarútveginum inn í ríkissjóðinn, bæta Því við aðrar kvaðir ýmsar, sem á atvinnurekstrinum hvíla.