10.04.1962
Neðri deild: 88. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1555 í B-deild Alþingistíðinda. (1506)

212. mál, dánarvottorð

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Hæstv. forseti. Þetta frv. er eins konar fylgifiskur með frv. um þjóðskrá og fjallar eingöngu um tæknileg atriði. Á það að leiða til þess, að auðveldara sé að fylgjast með dánarvottorðum en verið hefur. Málið hefur þegar hlotið meðferð í Ed. og sætti þar engum ágreiningi, og vonast ég til Þess, að það fái einnig afgreiðslu hér. Ég legg til, að frv. sé vísað til 2. umr. og sömu n., sem hafði þjóðskrármálið, allshn.