12.04.1962
Neðri deild: 90. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1594 í B-deild Alþingistíðinda. (1531)

110. mál, ríkisreikningurinn 1960

Frsm. meiri hl. (Birgir Kjaran):

Hæstv. forseti. Fjhn. hv. d. hefur haft til meðferðar frv. til laga um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1960. N. hefur yfirfarið niðurstöðutölur ríkisreikningsins og borið saman og ekki fundið neitt athugavert við, og leggur meiri hl. n. til, að frv. verði samþ. óbreytt. Minni hl. mun hins vegar skila séráliti.